Aðsend grein: Daníel Þór Heimisson. 

Undirritaður hefur verið svo heppinn að fá að starfa í Arnardal með stuttu hléi frá 2017. Arnardalur er félagsmiðstöð, fyrir unglinga á aldrinum 13 til 16 ára. Þar er unnið gríðarlega gott og mikilvægt starf, þá sérstaklega hvað varðar forvarnir og jákvæð samskipti en félagsmiðstöðvar geta skipti miklu máli í félagsþroska og hvernig unglingar verða að manni. Foreldrar eiga að geta treyst því að unglingar þeirra eru í góðum höndum ef þeir sækja félagsmiðstöðina í sínu hverfi. Arnardalur er þar engin undantekning. 

Í Arnardal reynum við að hvetja unglingana til dáða og láta þá líta út fyrir að vera hluta af hóp. Starfsemi félagsmiðstöðva er oft á tíðum mjög vanmetin, þar sem starfsemin er ekki lögbundin þjónusta, getur oft verið auðvelt að skera niður og takmarka þjónustu. Það yrði hins vegar afleikur ef það yrði gert, og þá sérstaklega á Akranesi. Arnardalur er nefnilega stór félagsmiðstöð á íslenskan mælikvarða. Í Reykjavík og í stærri sveitarfélögum er félagsmiðstöð hverfisins oft bundin við ákveðinn skóla, því er ekki háttað þannig á Akranesi. Arnardalur er fyrir báða skólana, sem er jákvætt því unglingar geta myndað tengsl við aðra utan veggja þeirra skóla. Arnardalur er ein best sótta félagsmiðstöð á öllu landinu. Á nýafstöðnum vetri voru vel ríflega 70 unglingar að mæta í Arnardal á hverju kvöldi að meðaltali, sem allar félagsmiðstöðvar á Íslandi gætu stært sig af. Af hverju skyldi það nú vera? Af hverju er svona öflug félagsmiðstöð á Akranesi af öllum stöðum? Svarið er einfalt, það er Arnardalur. Arnardalur er mikilvægur þáttur í augum okkar Skagamanna. Arnardalur er merkilegur staður, þar voru mamma og pabbi með vinum sínum og þar fóru allir, af hverju ætti ég ekki heima í Arnardal?

Í Arnardal eru allir velkomnir. Þar getur hver og einn látið ljós sitt skína og verið hluti af sögu Arnardals. Í Arnardal gerast nefnilega hlutirnir. Í áranna rás hefur Arnardalur breyst en þó ekki svo ýkja mikið. Vissulega er enginn Einar Skúlason  lengur að rífa fram nýjustu vídeóspólurnar í tækið og við veljum ekki lengur herra Arnardal og frú Arnardal, en gömlu góðu gildi Arnardals eru enn við lýði. Við gerum þetta klassíska, krýnum borðtennismeistara, poolmeistara og verðlaunum gáfnaljós Arnardals og stundum er ekkert gefið eftir á þeim bænum, enda engin ástæða til. Við vitum nefnilega að Arnardalur skiptir máli. Arnardalur er vinsæll staðar og hann þjónar sínum tilgangi. Við vitum að Arnardalur virkar og við æðum ekkert út í róttækar breytingar af ástæðu lausu.

Veturinn 2024-2025 var eins konar met ár hjá Arnardal. Aðsóknin í félagsmiðstöðina okkar hefur nær aldrei verið jafn góð. Við héldum fjölmennustu þrettándabrennu í sögu Arnardals, við vorum með mjög svo heppnaða vökunótt þar sem unglingarnir okkar fengu þá umbun skilið sem þeir unnu fyrir á þrettándanum. Við héldum Landsmót Samfés í október, þar sem við tókum á móti hátt í fimmtán hundruð unglingum alls staðar af á landinu, í raun hefur veturinn verið virkilega vel heppnaður hvar sem litið er. Ár eftir ár á Arnardalur fulltrúa í Ungmennaráð Samfés fyrir Vesturland og engin ástæða til þess að ætlast en að það verði nokkur breyting þar á á næstunni. 

Á öllum þeim viðburðum sem við höfum farið á í vetur hafa unglingar Arnardals verið sínu bæjarfélagi og sinni félagsmiðstöð til mikils sóma. Þetta er ekki sjálfgefið. Arnardalur er nefnilega svo heppinn að eiga svona flottan hóp unglinga. Arnardalur hefur verið heppinn í gegnum tíðina, þó ég segi sjálfur frá, með starfsfólk, en núna á síðustu árum einkar heppinn með unglingana sem sækja í dalinn. Unglingar í dag heyra lítið annað en að þeir geti ekki lesið, skrifað né reiknað og lítið annað en það kemst í umræðuna. Þó svo að eflaust má gera miklu betur í þeim efnum á Íslandi er vert að staldra við og sýna og segja að við getum samt verið stolt af því sem unglingarnir okkar hafa áorkað í vetur. 

Með þessum skrifum er aðallega ítrekað á mikilvægi félagsmiðstöðva, mikilvægi þess að halda áfram að halda starfi félagsmiðstöðva á lofti og sannarlega megum við Skagamenn vera stoltir af okkar flottu unglingum og ekki síst af Arnardal.

Arnardalur er og verður áfram, ef við viljum það, besta félagsmiðstöð landsins og mikilvægur þáttur í lífi hvers Skagamanns.

Því hlutirnir gerast svona sannarlega áfram í Arnardal, því Arnardalur virkar.

Daníel Þór Heimisson. 

  • Skagafréttir hafa á undanförnum átta árum beint kastljósinu að mannlífinu á Akranesi og flutt mörg þúsund fréttir af Skagamönnum nær og fjær.
  • Bæjarfréttamiðill sem er opinn fyrir alla er ekki sjálfsagður hlutur.
  • Hefur þú tök á því að styðja við bakið á fréttamiðlinum okkar?