Jón Þór Hauksson er hættur sem þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá ÍA – þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. 

ÍA er í neðsta sæti Bestu deildarinnar þegar ellefu umferðum er lokið – en liðið er með þrjá sigra og átta tapleiki. 

Fréttatilkynningin er í heild sinni hér fyrir neðan. 

Fréttatilkynning –

Breytingar í þjálfarateymi meistaraflokks karla

Knattspyrnufélag ÍA tilkynnir að Jón Þór Hauksson hefur látið af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla. Ákvörðunin var tekin í samráði milli Jóns Þórs og stjórnar félagsins.

Jón Þór tók við þjálfun liðsins þann 1. febrúar 2022 og hefur gegnt starfinu af ábyrgð og festu á þeim tíma sem hann hefur verið hjá félaginu. Bæði hann og stjórn félagsins voru sammála um að nú væri rétt að gera breytingar, með hagsmuni liðsins og framtíðaruppbyggingu að leiðarljósi.

„Ég vil þakka Knattspyrnufélagi ÍA fyrir samstarfið síðustu ár. Það hefur verið mér bæði mikill heiður og ánægjulegt að starfa með leikmönnum og starfsfólki félagsins. Ég óska liðinu og öllum sem að því koma góðs gengis í framtíðinni.“ Jón Þór Hauksson

Stjórn KFÍA þakkar Jóni Þór fyrir samstarfið og óskar honum velfarnaðar í næstu verkefnum.

Stjórnin hefur hafið undirbúning að ráðningu nýs þjálfara og verður tilkynnt um framhaldið þegar það liggur fyrir.

F.h. stjórnar Knattspyrnufélags ÍA
Eggert Herbertsson, formaður