Nemendur í 1.-4. bekk í Brekkubæjarskóla fengu skemmtilega upplifun á dögunum í íþróttahúsinu við Vesturgötu. 

Þá stóð til að krakkarnir fengju að upplifa útilegu í Garðalundi, en viðburðurinn hefur verið árlegur hjá þessum aldurshópi. 

En veðrið bauð ekki upp á hálfsdagsútilegu í skjólgóðum Garðalundi – og var því talið í plan B. 

Tjaldborg var slegið upp í hluta íþróttasalarins – og leikja- og þrautabraut ásamt öðrum skemmtilegum viðfangsefnum var einnig sett upp.

Krakkarnir skemmtu sér konunglega í úti/innilegunni eins og sjá má á þessum myndum frá Brekkubæjarskóla.

  • Skagafréttir hafa á undanförnum átta árum beint kastljósinu að mannlífinu á Akranesi og flutt mörg þúsund fréttir af Skagamönnum nær og fjær.
  • Bæjarfréttamiðill sem er opinn fyrir alla er ekki sjálfsagður hlutur.
  • Hefur þú tök á því að styðja við bakið á fréttamiðlinum okkar?