Bæjarlistamaður Akraness árið 2025 er tónlistarmaðurinn og rithöfundurinn Orri Harðarson. Greint frá útnefningunni þann 17. júní.
Orri lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi 7. júní síðastliðinn, á 53. aldursári, eftir skammvinna baráttu við krabbamein. Orri fæddist á Akranesi 12. desember 1972.

Eftirtaldir listamenn hafa fengið titilinn bæjarlistamaður Akraness:
- 2025: Orri Harðarson, tónlistarmaður og rithöfundur.
- 2024: Birgir Þórisson, tónlistarmaður.
- 2023: Eva Björg Ægisdóttir, rithöfundur.
- 2022: Hallgrímur Ólafsson, leikari og tónlistarmaður.
- 2021: Valgerður Jónsdóttir, tónlistarkona.
- 2020: Tinna Rós Steindórsdóttir.
- 2019: Bjarni Skúli Ketilsson, myndlistamaður
- 2018: Eðvarð Lárusson, tónlistamaður.
- 2017: Kolbrún S. Kjarval leirlistakona
- 2016: Slitnir strengir, þjóðlagasveit
- 2015: Gyða L. Jónsdóttir Wells myndhöggvari
- 2014: Erna Hafnes myndlistakona
- 2013: Sigurbjörg Þrastardóttir rithöfundur
- 2012: Sveinn Arnar Sæmundsson orgelleikari
- 2011: Hanna Þóra Guðbrandsdóttir sópransöngkona
- 2010: Dýrfinna Torfadóttir gullsmiðu
- 2005-2009:
- Friðþjófur Helgason ljósmyndari (eitt kjörtímabil)
- 2004: Bragi Þórðarson bókaútgefandi og rithöfundur
- 2003: Enginn hlaut nafnbótina þetta árið en menningarmála- og safnanefnd ákvað að nýta starfsstyrk fyrir menningarviku í október (fyrstu Vökudagarnir)
- 2002: Kristján Kristjánsson rithöfundur og bókaútgefandi
- 2001: Smári Vífilsson tenórsöngvari
- 1999-2000: Enginn hlaut nafnbótina þessi ár en starfslaun bæjarlistamanna var varið til að styrkja listamenn á Akranesi sem gerðu listaverk tengd viðfangsefninu Sjávarlist.
- 1998: Kristín Steinsdóttir rithöfundur
- 1997: Bjarni Þór Bjarnason myndlistarmaður
- 1996: Philippe Ricart handverksmaður
- 1994-1995: Guttormur Jónsson högglistamaður
- 1993: Helena Guttormsdóttir myndlistarmaður
- 1992: Hreinn Elíasson myndlistarmaður
- Skagafréttir hafa á undanförnum átta árum beint kastljósinu að mannlífinu á Akranesi og flutt mörg þúsund fréttir af Skagamönnum nær og fjær.
- Bæjarfréttamiðill sem er opinn fyrir alla er ekki sjálfsagður hlutur.
- Hefur þú tök á því að styðja við bakið á fréttamiðlinum okkar?