Akraneskaupstaður hefur ráðið Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur í nýtt starf upplýsingafulltrúa. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Starfið felur í sér að leiða upplýsingamiðlun og samskipti sveitarfélagsins við almenning og fjölmiðla. Alls barst 31 umsókn um starfið.

Sigrún Ósk er með BA-próf í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði frá Háskólanum á Bifröst. Hún hefur víðtæka og farsæla reynslu úr fjölmiðlum, þar sem hún hefur starfað sem blaðamaður, ritstjóri og við dagskrárgerð ýmissa sjónvarps- og útvarpsþátta. Auk þess hefur hún gegnt starfi markaðs- og atvinnufulltrúa hjá Akraneskaupstað og verið varamaður í bæjarstjórn.

Upplýsingafulltrúi gegnir lykilhlutverki í að tryggja skýra, faglega og gagnsæja upplýsingagjöf til íbúa, fjölmiðla og annarra hagsmunaaðila. Með ráðningu Sigrúnar Óskar styrkir Akraneskaupstaður enn frekar upplýsingamiðlun sína og eykur aðgengi að upplýsingum um starfsemi og stefnumál sveitarfélagsins.

„Með starfi upplýsingafulltrúa er ætlun okkar að bæta upplýsingamiðlun til íbúa Akraness og viðskiptavina Akraneskaupstaðar. Það er mikill fengur fyrir sveitarfélagið að fá Sigrúnu Ósk til starfa. Hún býr yfir mikilli þekkingu og reynslu á sviði miðlunar og þekkir jafnframt samfélagið og málefni Akraness afar vel,“ segir Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri.

„Ég er afar þakklát fyrir að hafa verið treyst fyrir því mikilvæga verkefni að móta nýtt starf upplýsingafulltrúa hjá Akraneskaupstað og er full tilhlökkunar að hefja störf. Mér hefur alla tíð þótt mjög vænt um þetta góða bæjarfélag og er spennt fyrir að leggja mín lóð á vogarskálarnar,“ segir Sigrún Ósk.

Sigrún Ósk mun hefja störf í byrjun ágúst og mun meðal annars bera ábyrgð á samfélagsmiðlum Akraneskaupstaðar, útgáfu fréttatilkynninga, upplýsingagjöf um verkefni og stefnumál sveitarfélagsins, sem og tengslum við fjölmiðla.

 

  • Skagafréttir hafa á undanförnum átta árum beint kastljósinu að mannlífinu á Akranesi og flutt mörg þúsund fréttir af Skagamönnum nær og fjær.
  • Bæjarfréttamiðill sem er opinn fyrir alla er ekki sjálfsagður hlutur.
  • Hefur þú tök á því að styðja við bakið á fréttamiðlinum okkar?