Bæjarráð Akraneskaupstaðar krefst þess að ríkisstjórn Íslands geri allt sem í hennar valdi stendur til að koma í veg fyrir að fyrirhugaðir tollar ESB á kísiljárn verði að veruleika. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðinu.
„Slíkt yrði reiðarslag fyrir eitt mikilvægasta atvinnufyrirtæki Akraness, Elkem á Grundartanga. Þá er ekki ljóst af fréttum hvort hagsmunum Norðuráls á Grundartanga verði í framhaldinu ógnað með tollum á álframleiðslu. Verði það niðurstaðan blasir við fordæmalaust áfall fyrir atvinnulíf á Akranesi.

Bæjarráð vill einnig vekja athygli á því að á iðnaðarsvæðinu á Grundartanga er nú í farvatninu gríðarlega mikil uppbygging og fjárfesting nýrra framleiðslufyrirtækja sem hafa beina hagsmuni af rekstri Elkem. Þá er nú unnið að nýsköpunarverkefnum sem miða að því að nýta betur efnis- og orkustrauma innan svæðisins í anda hringrásarhagkerfisins. Öll þessi áform eru nú sett í uppnám.
Tjón á rekstri fyrirtækja á Grundartanga yrði alvarlegt efnahagslegt áfall og hefði með beinum hætti áhrif á afkomu þjóðarbúsins. Þá er ljóst að atvinnu og afkomu hundraða einstaklinga er ógnað með beinum hætti.
Áform ESB eru algjörlega óskiljanleg og í engu samhengi við stefnu sambandsins um að gæta að viðkvæmum aðfangakeðjum fyrir mikilvæg aðföng til iðnaðarframleiðslu. Bæjarráð krefst þess að ríkisstjórn Íslands mótmæli nú þegar harðlega slíku broti á EES samningnum. Bæjarráð óskar þegar í stað eftir fundi með forsætis-, utanríkis- og atvinnumálaráðherrum um þá alvarlegu stöðu sem blasir við á allra næstu dögum.“
- Skagafréttir hafa á undanförnum átta árum beint kastljósinu að mannlífinu á Akranesi og flutt mörg þúsund fréttir af Skagamönnum nær og fjær.
- Bæjarfréttamiðill sem er opinn fyrir alla er ekki sjálfsagður hlutur.
- Hefur þú tök á því að styðja við bakið á fréttamiðlinum okkar?