
Karlasveit Leynis 65 ára og eldri náði flottum árangri á Landsmóti golfklúbba sem fram fór í Hveragerði nýverið.
Leynismenn voru efstir í sínum riðli. Fjögur efstu liðin léku sín á milli eftir þær viðureignir var fjórða sætið niðurstaðan hjá Skagamönnum.

Sveitina skipuðu: Björn Halldór Björnsson, Björn Bergmann Þórhallsson, Halldór B. Hallgrímsson (sem var jafnframt liðsstjóri), Jóhann Sigurðsson og Valentínus Ólason.
- Skagafréttir hafa á undanförnum átta árum beint kastljósinu að mannlífinu á Akranesi og flutt mörg þúsund fréttir af Skagamönnum nær og fjær.
- Bæjarfréttamiðill sem er opinn fyrir alla er ekki sjálfsagður hlutur.
- Hefur þú tök á því að styðja við bakið á fréttamiðlinum okkar?