Á morgun, þann 24. október, hefur verið boðað til kvennaverkfalls. Þar taka þátt fjölmörg samtök kvenna, launafólks og hagsmunahópa. 

Söguganga fer fram í Reykjavík sem endar með fundi á Arnarhóli. 
Gera má ráð fyrir að fjölmargar konur frá Akranesi taki þátt og hefur Akraneskaupstaður sent frá sér eftirfarandi tilkynningu. 

„Hjá Akraneskaupstað starfar mikill fjöldi kvenna og kvára í hinum ýmsu störfum. Stjórnendur stofnana bæjarins hafa verið beðnir um að leita leiða til að koma til móts við starfsfólk eftir því sem hægt er og skapa eftir bestu getu aðstæður á starfsstað til að sem flestar konur og kvár geti tekið þátt í kvennaverkfallinu, að hluta eða í heild.

Því má reikna með röskun í starfsemi stofnana bæjarins, ekki hvað síst í leikskóla-, grunnskóla- og frístundastarfi. Foreldrar eru því hvattir til að fylgjast með tilkynningum frá skólum og/eða frístundaheimilum barna sinna hvað þetta varðar.“