Sundfólk úr Sundfélagi Akraness stóð sig vel á Íslandsmótinu í 25 metra laug sem fram fór um helgina. Keppt var í unglinga – og fullorðinsflokki (opinn flokkur).
Sunna Arnfinnsdóttir varð Unglingameistari í 1500 m skriðsundi á tímanum 18:01,27 mín, sem tryggði henni einnig 2. sæti í opnum flokki. Sunna bætti fyrri árangur sinn um heilar 9 sekúndur en það eru þrjár vikur frá því hún náði að bæta sinn besta tíma í þessari grein. Hún varð í 3. sæti í 100 metra baksundi, 1:06,26 mín.
Guðbjarni Sigþórsson vann til silfurverðlauna í 100 m fjórsundi á 58,34 sek. Hann fékk bronsverðlaun í 50 m flugsundi á 25, 86 sek og einnig í 50 m skriðsundi á 23,49 sek. Guðbjarni varð einnig í fimmta sæti í 100 m. skriðsundi á 51,18 sek – en hann bætti árangur sinn í öllum keppnisgreinum sem hann tók þátt í
Viktoria Emilia Orlita sýndi frábæra frammistöðu og bætti sig í öllum þeim greinum sem hún tók þátt í. Hún synti sig inn í úrslit í 50 m og 100 m skriðsundi og 100 m fjórsundi, hún varð í 6. sæti í 50 m skriðsundi og 100 m fjórsundi og 7. í 100 m skriðsundi.
Karen Anna Orlita, yngsti keppandi liðsins, bætti sig í 4 af 5 greinum og varð 9. í 50 m flugsundi og 50 m skriðsundi, aðeins einu sæti frá því að komast í úrslit í opnum flokki.
Sunna Dís Skarphéðinsdóttir synti 50 m skriðsund mjög nálægt sínum besta tíma og hafnaði í 13. sæti, en þurfti því miður að draga sig úr keppni vegna veikinda og tók ekki þátt í 100 m og 200 m skriðsundi.
Árangur í boðsundum hjá ÍA varð eftirfarandi:
5. sæti:
4x100m skriðsund kvenna – Sunna A., Viktoria Emilia, Karen Anna og Sunna D.
4x50m fjórsund kvenna – Sunna A., Viktoria Emilia, Karen Anna og Sunna D.
4x50m fjórsund blönduð sveit – Sunna A., Guðbjarni, Ágúst Júliusson og Viktoria Emilia
6. sæti.
4 x 50 m skriðsund blönduð sveit – Guðbjarni, Eymar Ágúst Eymarsson, Viktoria Emilia og Sunna A.








