Stefnt er að stórauknum umsvifum loftslagsvænnar atvinnustarfsemi á Grundartanga og munu stjórnvöld taka virkan þátt í að kortleggja sóknarfæri, áskoranir og óvissuþætti vegna verkefna á svæðinu.

Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Elkem Ísland, Þróunarfélags Grundartanga og Orkuveitunnar, ásamt dótturfélögunum Orku náttúrunnar og Carbfix, sem Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, undirritaði ásamt fulltrúum fyrirtækjanna á Grundartanga í dag.

Samstarfið við fyrirtækin er liður í stefnu stjórnvalda um að festa í sessi samkeppnishæfa og loftslagsvæna stóriðjustarfsemi á Íslandi til framtíðar. Horft verður til uppbyggingar varmavirkjunar og nýtingar glatvarma frá Elkem fyrir nýja og fjölbreytta starfsemi og jafnframt til föngunar og bindingar kolefnis frá útblæstri verksmiðjunnar.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið mun framkvæma úttekt á lagaumhverfi og regluverki er lýtur að orkuendurnýtingu og föngun og bindingu kolefnis. Í kjölfarið verður metið hvort tilefni sé til breytinga til að greiða með almennum hætti fyrir þróun og uppbyggingu iðngarða á Íslandi.

Viljayfirlýsingin er í samræmi við áherslur ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum og þá framtíðarsýn sem lögð hefur verið til grundvallar atvinnustefnu stjórnvalda, að Ísland sé samfélag þar sem verðmætasköpun er knúin áfram af sjálfbærri nýtingu auðlinda og kröftugum vexti útflutnings í atvinnugreinum með háa framleiðni.

Í nýju landsákvörðuðu framlagi Íslands vegna Parísarsamningsins er í fyrsta skipti stefnt að því að draga með markvissum hætti úr losun frá staðbundnum iðnaði sem fellur undir ETS-kerfið. Greint var frá því í morgun að Loftslags- og orkusjóður muni veita styrki til nýsköpunar og tækniþróunar sem stuðla að samdrætti í losun frá slíkum iðnaði. Beindi ráðherra því til stjórnar sjóðsins að auglýsa styrki til slíkra verkefna fyrir allt að 400 milljónir króna fyrir árslok 2025.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra:

„Stóriðjuuppbygging hefur verið lykillinn að því að skapa sterkt og samkeppnishæft raforkukerfi á Íslandi þar sem verksmiðjurnar okkar eru knúnar endurnýjanlegri orku. Nú árið 2025 er að hefjast nýr kafli í stóriðjusögunni, þar sem við látum okkur ekki nægja að framleiðslan byggi á grænni orku heldur ýtum líka markvisst undir endurnýtingu orkunnar og föngun kolefnis frá verksmiðjum, þar sem við virkjum glatvarmann og fjölnýtum auðlindastraumana til margvíslegrar starfsemi. Þannig stuðlum við að aukinni samkeppnishæfni og verðmætasköpun á sjálfbærum grunni. Um þetta snúast þau skref sem við tökum í dag, annars vegar með viljayfirlýsingunni um aukin umsvif á Grundartanga, og hins vegar með þeirri ákvörðun að verja 400 milljónum úr Loftslags- og orkusjóði til styrktar tæknilausnum vegna losunar frá stóriðju.“

Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar:

„Þetta er dæmi um það hvernig verkefni Orkuveitunnar og dótturfélaga geta skapað raunveruleg verðmæti fyrir íslenskt samfélag. Í mínum huga er þetta verkefni sem getur orðið lykillinn að því að auka samkeppnishæfni iðnaðar á Íslandi. Við hjá Orkuveitunni erum að nýta auðlindir Íslands af ábyrgð og þróum nýjar lausnir sem stuðla að kolefnishlutleysi, orkuöryggi og sjálfbærri atvinnuuppbyggingu.“

Edda Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix:

„Þetta er rökrétt og ánægjulegt framhald af samningi Carbfix, Þróunarfélags Grundartanga og Elkem frá 2024. Með þessu skapast enn sterkari grundvöllur til árangurs í loftslags- og atvinnumálum á Grundartanga með því að draga úr losun frá stóriðju á Íslandi með þrautreyndri tækni Carbfix.“

Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri ON:

„Orka náttúrunnar rekur Jarðhitagarð ON á Hellisheiði þar sem alla daga er verið að nýta auðlindir svæðisins á ábyrgan og ábatasaman hátt. Sú dýrmæta þekking sem þar hefur orðið til mun nýtast vel við uppbyggingu varmavirkjunar á svæðinu og annað sem samstarfið mun fela í sér.“

 

Guðjón Steindórsson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Grundartanga:

„Við höfum unnið lengi og markvisst að þróun græns iðngarðs hér á svæðinu og nú erum við farin að sjá það komast á framkvæmdastig. Nú þegar eru öflug fyrirtæki starfandi á Grundartanga og mikill áhugi er meðal nýrra fyrirtækja á að koma og starfa hér í samræmi við stefnu græns iðngarðs. Þar má m.a. nefna félög í magnesíumvinnslu, landeldi, grænu eldsneyti og fóðurframleiðslu. Samstarf þessara aðila styrkir verulega grunninn að því að þessi verkefni verði að veruleika á næstunni.“

Álfheiður Ágústsdóttir forstjóri Elkem á Íslandi:

„Stefna Elkem byggir á tveim megin stoðum að draga úr losun CO2 sem og annarri losun, sem og að framleiða krítískar afurðir fyrir orkuskipti heimsins. Við erum afar ánægð með að verkefnin séu komin af stað og hlökkum til að sjá þau komast á skrið. Þetta samstarf getur styrkt stoðir Elkem og aukið samkeppnishæfni til framtíðar, á sama tíma og það skapar grundvöll fyrir fleiri fyrirætlanir á svæðinu sem munu stuðla að auknum störfum og hagsæld í samfélaginu. Með því að leggja áherslu á sjálfbærni og nýsköpun erum við að byggja upp framtíð sem nýtir auðlindir á ábyrgan hátt og skapar varanleg verðmæti.“

Ljósmyndir tók Einar Örn Jónsson.