
Í maí á þessu ári verða bæjarstjórnarkosningar á Akranesi.
Framboðslistar eru í vinnslu hjá flestum flokkum.

Líf Lárusdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í kosningunum 2022, hefur gefið það út að hún sækist eftir áframhaldandi stuðningi sem oddviti flokksins.
Valgarður Lyngdal Jónsson, forseti bæjarstjórnar, hefur gefið það út að hann sækist ekki eftir endurkjöri hjá Samfylkingunni.
Einar Brandsson, tæknifræðingur, sem skipaði 2. sætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í síðustu kosningum, segir að hann eigi enn eftir að taka ákvörðun um framhaldið hjá sér – og hann leggur áherslu á að hann sé ekki hættur og enn síður að hann sé að fara í framboð fyrir Miðflokkinn. Þetta kemur fram í færslu sem Einar skrifaði í dag á samfélagsmiðla.
Færslan er hér fyrir neðan.
„Hef mikið verið spurður um hvað ég hafi hugsað mér með næsta kjörtímabil. Hef fengið hvatnigu til að halda áfram og svo hafa verið raddir sem gefa það sterklega til kynna að minn tími sé liðinn. Fyrir ca ári síðan var byrjað að spyrja mig hvað ég ætlaði að gera með framhaldið. Á þeim tímapunkti þá sagði ég að ef ég ætti að svara þá þá væri meiri líku en minni að ég léti staðar numið. Þannig var bara staðan þá.
Í dag er ég í raun með fullan áhuga á að halda áfram, finnst nánast að ég sé rétt að byrja og spenandi tímar framundan. En það er ekki alltaf nóg að maður sjálfur sé með fullann áhuga, það verður að vera eftirspurn eftir manni og svo þarf að vega og meta hvað er best fyrir framboðið.
Á síðasta ári fór ég að heyra það, sennilega út frá þeim svörum sem ég gaf í fyrra, að ég ætlaði að hætta núna. Var í gær sagt við mig að eftir áreiðanlegum heimildum þá væri ég búinn að ákveða að bjóða mig ekki aftur fram fyrir sjallana (eiginlega gefið í skyn að ég ætlaði fram fyrir einhverja aðra). Í sömu setninguni nánast var ég spurður hvort Miðflokkurinn hefði haft samband við mig.
Heimildir fyrir því voru nú ekki eins áreiðanlegar.
Gaman ef fólk getur verið að spekulera í þessu en ég get fullyrt að þessar áreiðanlegu heimildir eru ekki frá mér allavega. En það styttist í að þetta liggi fyrir það er alveg víst.“






