
Sundsamband Íslands hélt upp á 75 ára afmæli sambandsins þann andsins 12. febrúar s.l.
Á afmælishátíðinni var kastljósinu beint að sjálfboðaliðum – sem hafa í gegnum árin unnið ómetanlegt starf í þágu hreyfingarinnar.

Heiðursviðurkenningar voru veittar sjálfboðaliðum sem hafa af alúð og metnaði unnið í þágu sundsins.
Sex Akurnesingar fengu silfurmerki Sundsambandsins á afmælishátíðinni en þau eru:
Ólafur Páll Gunnarsson
Ingunn Ríkharðsdóttir
Berglind Valdimarsdóttir
Þórdís Bjarney Guðmundsdóttir
Bjarney Guðbjörnsdóttir
Leifur Guðni Grétarsson






