Knattspyrnufélag ÍA er með U-19 ára karlalið sitt í æfingaferð í Danmörku og Svíþjóð. 

Liðið leikur þrjá leiki í þessari ferð. 

Í fyrsta leiknum var akademíulið FC Nordsjælland mótherji ÍA, og þar höfðu Skagamenn betur með stórsigri, 5-0. 

Gabríel Snær Gunnarsson, Rafael Máni Þrastarson, Jón Breki Guðmundsson, Daníel Michal Grzegorzsson og Grétar Jónatan Pálmason

ÍA mætir einnig danska liðinu AB og sænska liðinu Helsinborg í þessari ferð. 

Skagaliðið hefur náð flottum árangri undanfarin misseri en liðið hefur tvívegis sigrað í bikarkeppni KSÍ í 2. flokki. Samtals hafa leikmenn liðsins leikið yfir 80 landsleiki með yngri landsliðum KSÍ.