
Fjórir fyrrum leikmenn karlaliðs ÍA í knattspyrnu fengu gullmerki í gær á aðalfundi félagsins.
Gullmerkið fá þeir fyrir sitt framlag til félagsins og íslenskrar knattspyrnu.

Leikmennirnir eru Arnar Gunnlaugsson, Bjarki Gunnlaugsson, Teitur Þórðarson og Pétur Pétursson. Teitur var ekki viðstaddur þegar merkin voru afhent.
Teitur ruddi brautina fyrir aðra þegar hann fór í atvinnumennsku í Svíþjóð og Frakklandi. Hann varð m.a. sænskur meistari þrívegis með Öster. Nánar hér:
Pétur fór ungur í atvinnumennsku til Hollands og varð m.a. bikarmeistari í Hollandi og markahæsti leikmaður deildarinnar tvívegis. Nánar hér:
Tvíburarnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir hófu atvinnumannaferilinn í Hollandi hjá Feyenoord líkt og Pétur.
Þeir léku allir fjölmarga landsleiki fyrir Ísland. Pétur var aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla í mörg ár og Arnar er í dag þjálfari A-landsliðs karla.
Mynd/ Jon Gautur foto








