Karlalið ÍA í körfuknattleik sigraði Keflavík í kvöld 97:96 í Bónusdeild Íslandsmótsins, efstu deild. Þetta var fyrsti sigur Skagamanna frá því í nóvember. 

Með sigrinum á ÍA enn möguleika á að halda sæti sínu í efstu deild. 

Bandaríkjmaðurinn Darryl Latrell Morsell lék sinn besta leik með ÍA en hann var áður leikmaður Keflavíkur. Hann vildi greinilega sýna hvað í honum býr gegn liðinu sem lét hann fara á miðju keppnistímabili. Hann skoraði 36 stig, tók 9 fráköst, gaf 5 stoðsendingar og var fremstur í flokki í varnarleik ÍA. 
Ivan Gavrilovic, sem kom til ÍA frá Tindastól nýverið, skoraði 24 stig og tók 7 fráköst. Gojko Zudzum er að ná sínum fyrri styrk eftir langvinn meiðsli en miðherjinn skoraði 16 stig og tók 11 fráköst.

Styrmir Jónasson skoraði 12 stig fyrir ÍA, allt úr þriggja stiga skotum.  

Skagamenn eru með fjóra sigra eftir 18 umferðir, alls 8 stig. Ármann er með sama stigafjölda en liðin eru í fallsætunum tveimur. Þór Þorlákshöfn tapaði í kvöld og er liðið með 10 stig. 

Framundan er fallbarátta hjá Skaganum. Ef ÍA og Þór Þorlákshöfn verða jöfn að stigum þá eru Þórsarar með yfirhöndina vegna betra stigaskors í innbyrðisviðureignum liðanna. Skagamenn unnu fyrri leikinn með 10 stiga mun, 102:92. Þór sigraði með 30 stiga mun á sínum heimavelli, 105:75. 

ÍA tapaði fyrri leiknum gegn Ármanni, 102:83 eða með 19 stiga mun. Þessi lið mætast í lokaumferðinni og í þeim leik gæti stigamunur ráðið því hvernig liðin raðast á stigatöfluna. 

Leikir ÍA sem eftir eru: 
6. mars: ÍR – ÍA
14. mars: ÍA – Tindastóll 
20. mars: Stjarnan – ÍA 
26. mars: ÍA – Ármann. 

Leikir sem Þór Þ. á eftir eru: 
6. mars: Stjarnan – Þór Þ. 
12. mars: Þór Þ. – Ármann 
19. mars: Þór Þ. – Njarðvík 
26. mars: Grindavík – Þór Þ. 

Leikir sem Ármann á eftir eru: 
6. mars: Ármann – Njarðvík. 
12. mars: Þór Þ. – Ármann 
19. mars: Ármann – Grindavík. 
26. mars: ÍA – Ármann.