Tveir leikmenn úr röðum ÍA eru í U-16 ára landsliði karla hjá KSÍ sem tekur þátt á UEFA móti í Færeyjum í lok febrúar og byrjun mars. 

Skagamaðurinn Lúðvík Gunnarsson er þjálfari liðsins. 

Aron Kristinn Zumbergs og Styrmir Gíslason verða fulltrúar ÍA í þessu liði. 

Ísland mætir Færeyjum, Eistlandi og Bosníu og Hersegóvínu á þessu móti. 

Hópurinn er þannig skipaður: 

  • Arnar Bjarki Gunnleifsson – Breiðablik
  • Darri Kristmundsson – Breiðablik
  • Elmar Ágúst Halldórsson – Breiðablik
  • Óðinn Sturla Þórðarson – Breiðablik
  • Róbert Hugi Sævarsson – FH
  • Magnús Daði Ottesen – Fylkir
  • Mikael Máni Þorfinnsson – Grindavík
  • Kristján Tómas Björnsson – Grótta
  • Emil Eldar Takao Árnason – Hammarby IF
  • Bjarki Örn Brynjarsson – HK
  • Emil Máni Breiðdal Kjartansson – HK
  • Marten Leon Jóhannsson – HK
  • Aron Kristinn Zumbergs – ÍA
  • Styrmir Gíslason – ÍA
  • Emil Gautason – ÍBV
  • Sigurður Nói Jóhannsson – KA
  • Bjarki Hrafn Garðarsson – Stjarnan
  • Smári Signar Viðarsson – Þór
  • Fjölnir Freysson – Þróttur R.
  • Léo Hrafn Elmarsson – Þróttur R.