
Á undanförnum árum hefur Akraneskaupstaður áætlað að rífa mannvirkið við Vesturgötu 62.
Fyrir fjórum árum var þetta verkefni á dagskrá án þess að til framkvæmda kæmi.

Niðurrifið á þessu húsi er komið aftur í umræðuna hjá Akraneskaupstað því skipulags – og umhverfisráð hefur samþykkt kostnaðaráætlun vegna niðurrifs á húsinu.
Um er að ræða fyrsta íþróttahúsið á Akranesi og er saga þess er rúmlega 100 ára gömul.
Margvísleg starfssemi hefur verið í húsinu á undanförnum áratugum.
Þar má nefna kennslustofu fyrir trésmíðanám í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi,
Búkolla var um margra ára skeið með aðstöðu í þessu húsi en nytjamarkaðurinn hefur verið í stóru hlutverki þegar kemur að sjálfbærni og endurvinnslu hjá íbúum á Akranesi. Búkolla hætti starfssemi í þessu húsi í maí árið 2022 vegna slæmra loftgæða.
Í fundargerð ráðsins kemur fram að húsið sé ónothæft og í mjög slæmu ástandi – og vitnað í ástandsskýrslu Verkís frá 2022.
Ráðið hefur falið verkefnastjóra að óska eftir heimilda Ríkiseigna til niðurrifs og þátttöku þeirra í því verki.
Stjórnarfólk í Miðbæjarsamtökunum Akratorgi fjallaði um þessi áform Akraneskaupstaðar fyrir fjórum árum í þessum pistli – sem er hér fyrir neðan.








