Viðamiklar lokanir verða í Hvalfjarðargöngunum eftir páskahátíðina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 

Endurnýja á lýsingu í göngunum og hefst vinna þann 7. apríl 2026 og verklok eru áætluð rúmlega 50 dögum síðar eða 29. maí. 

Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur eftirfarandi fram: 

„Hvalfjarðargöng verða lokuð aðfaranætur sunnudags til föstudags frá kl. 21:30 til 06:00 frá 7. apríl til 29. maí. Hjáleið verður um Hvalfjörð (47). Opið verður fyrir umferð aðfaranætur laugardags og sunnudags.“