Viðgerðir á þaki Akraneshallarinnar eru á áætlun hjá Akraneskaupstað og er stefnt að því að framkvæmdir hefjist á næsta ári.

Þetta kemur fram í fundargerð skipulags- og umhverfisráðs. 

Akraneshöll var tekin í notkun sumarið 2006 og hefur mannvirkið gjörbreytt aðstöðu til knattspyrnuæfinga hjá ÍA.  Þakið þarfnast viðgerða enda eru tveir áratugir frá því að húsið var reist. 

Loftfarsmynd frá Jaðarsbakkasvæðinu – mynd/Hákot fasteignasala

Á fundi ráðsins nýverið var lögð fram kostnaðaráætlun um viðhald á klæðningu Akraneshallar sem byggir á tillögu frá Proseal.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til að við viðgerð á ytra byrði hússins verði þak einangrað og gaflar málaðir. Með þessu verklagi verður möguleika haldið opnum á upphitun hússins seinna meir.

Ekki kemur fram í fundargerðinni hver áætlaður kostnaður við framkvæmdina er – en heildarflatarmálið á þakinu er um 9000 fermetrar. 

Fjarðabyggðarhöllin – knattspyrnuhús á Reyðarfirði var einangrað í október á síðasta ári með lausninni sem Proseal býður upp á. Um er að ræða sérblandað einangrunarfrauð, af sömu tegund og notað er í flugvélar og ísskápa, og er lauflétt.

Nánar í frétt RÚV – smelltu hér: