Aðsend grein: 

Nú þegar styttist í kosningar vaknar sú spurning: 

Hver ætlar að standa raunverulega með barnafjölskyldum á Akranesi?

Ég, ásamt fjölmörgum foreldrum, höfum lengi viljað vekja athygli á stöðu mála sem snýr að stuðningi við barnafjölskyldur á Akranesi. Undanfarin ár hafa foreldrar ítrekað bent á að gjöld og stuðningur tengdur uppeldi barna séu hér óhagstæð miðað við mörg önnur sveitarfélög. 

Þetta vekur upp eðlilegar spurningar um það hvort Akranes sé samkeppnishæfur og raunverulega fjölskylduvænn búsetukostur.

Sérstaklega standa nokkur atriði upp úr:

  • Niðurgreiðsla á daggæslukostnaði er með því lægsta sem þekkist og hefur lítið breyst um árabil.
  • Systkinaafsláttur er lakari en víða annars staðar á landinu.
  • Frístundastyrkur er mun lægri en þekkist í öðrum sveitarfélögum og takmarkar þannig möguleika barna til þátttöku í íþróttum og tómstundastarfi.
  • Leikskólagjöld eru með þeim hærri á landinu.

Þessi samsetning veldur verulegu fjárhagslegu álagi á fjölskyldur og hefur bein áhrif á jöfn tækifæri barna og þáttöku í félags- og frístundastarfi.

Ef litið er á frístundastyrkinn blasir munurinn skýrt við. Í mörgum sveitarfélögum er hann á bilinu 65–75 þúsund krónur á barn. Á Akranesi er hann hins vegar mun lægri eða um 38- 49 þúsund krónur og tengdur fjölda barna á heimili. Þá fá 5 ára börn aðeins hálfan styrk. 

Þegar tekið er tillit til verðbólgu síðustu ára er ljóst að upphæðirnar hafa ekki haldið í við raunverulegan kostnað. Til að standa undir sama kaupmætti þyrfti frístunda styrkurinn að vera nær 70–75 þúsund krónum.

Ég tel brýnt að sveitarfélagið endurskoði þessi mál í heild sinni:

  • Hækki niðurgreiðslu á daggæslukostnaði
  • Endurskoði systkinaafslátt
  • Hækki frístundastyrk
  • Endurmeti leikskólagjöld

Markmiðið er skýrt: Að bæta stöðu barna og fjölskyldna ásamt því að tryggja jöfn tækifæri fyrir öll.

Að lokum spyr ég: Hverjir ætla að stíga fram og leggja fram skýra sýn um bætt lífsgæði fyrir fjölskyldufólk á Akranesi?

Með markvissum aðgerðum trúi ég að hægt sé að gera Akranes að raunverulega barnvænu samfélagi þar sem öll börn fá tækifæri til að blómstra.

Margrét Hlíf Óskarsdóttir:
Höfundur er dagforeldri og þriggja barna móðir.