
Kór Akraneskirkju og kór Keflavíkurkirkju héldu tvenna tónleika í Bíóhöllinni á Akranesi í gær – þar sem að um 100 manna kór og hljómsveit flutti söngleikinn Jesús Kristur Súpergoð. (Jesus Christ Superstar).
Uppselt var á báða tónleikana og skemmtu áhorfendur sér vel – eins og heyra má í myndbandinu hér fyrir neðan.

Eyþór Ingi Gunnlaugsson og Stefán Jakobsson voru í farabroddi á sviðinu ásamt fjölda einsöngvara úr kór Akraneskirkju.
Þetta er í annað sinn sem þessir kórar flytja þetta verk – en tvær sýningar fóru fram í Hljómahöllinni þann 21. mars s.l. – en þá voru það kórfélagar úr kór Keflavíkurkirkju sem sungu einsöng.
Tónlistin er eftir Andrew Lloyd Webber en verkið kom fyrst út árið 1970 og er einn allra stærsti rokksöngleikurinn frá upphafi. Karl Ágúst Úlfsson þýddi verkið sem var sungið á íslensku og nýjar útsetningar frá Arnóri Vilbergssyni, sem er stýrir kór Keflavíkurkirkju.
Stjórnendur voru þeir Arnór og Hilmar Örn Agnarsson, kórstjóri kórs Akraneskirkju.
Hljómveitina skipuðu þeir:
Bent Marinósson, rafgítar.
Sigurþór Þorgilsson, bassi.
Þorvaldur Kári Ingveldarson, trommur.
Birgir Þórisson, hljómborð.
Arnór Vilbergsson, hljómborð.
Hilmar Örn Agnarsson, hljómborð.








