Skagamaðurinn Eyleifur Ísak Jóhannesson hefur sagt upp störfum sem afreksstjóri Sundsambands Íslands – en því starfi hefur hann gegnt undanfarin sex ár. 

Eyleifur tekur við starfi hjá nýju dönsku sundfélagi, Sigma Sharks, en félagið er nýtt og tekur formlega til starfa í ágúst. Sundfélögin Birkerød og Søllerød runnu nýverið saman í eitt félag. Þar eru samtals 4000 iðkendur og þar af eru 300 iðkendur í afreks – og keppnishóp félagsins. 

Eyleifur er einn reyndasti sundþjálfarinn í Evrópu en hann hefur starfað sem þjálfari í þrjá áratugi. Hann var í 13 ár aðalþjálfari hjá Aalborg Svømmeklub – þar sem að margir af keppendum hans hafa náð frábærum árangri á alþjóðlegum stórmótum – og unnið til verðlauna á HM, EM og ÓL.