Aðsend grein:
Einar Brandsson fráfarandi bæjarfulltrúi skrifar grein sem birtist á Skagafrettir.is þann 1. maí. s.l.

Í greininni rifjar hann upp aðra grein sem hann skrifaði fyrir tveimur árum þar sem hann finnur allt að átaki Miðbæjarsamtakanna Akratorgs sem gekk út á að gera gamla Landsbankahúsið við Akratorg að ráðhúsi Akurnesinga.
Bæjarfulltrúinn segir í grein sinni að nú þegar búið sé að selja Landsbankahúsið og þar verði brátt starfrækt hótel, veitingastaður og veislusalur, hefði hann haldið að „Miðbæjarsamtökin, sem fóru mikinn fyrir tveimur árum, myndu senda frá sér yfirlýsingu þar sem þessari lífsbjörgun væri fagnað. Hún kemur kannski en hugsanlega er hræðsla við hávaða frá væntanlegu lífi í miðbænum eitthvað að hamla fagnaðarlátum stjórnarmanna“ – segir Einar.
Það er alltaf best að segja satt og staðreynd málsins er sú að áhugaleysi bæjaryfirvalda (kjörinna fulltrúa og embættismanna) á þessu sjálfsprottna grasrótarátaki bæjarbúa dró dálítið tennurnar úr þeim hópi sem var í forsvari Miðbæjarsamtakanna og þess vegna hefur ekki mikið heyrst frá þeim hópi síðan. Það er nú bara þannig. En til að gleðja bæjarfulltrúann þá upplýsist það hér með að a.m.k. formaðurinn sem hér skrifar og þeir sem hann hefur talað við úr hópnum eru mjög ánægðir með stöðuna eins og hún er í dag og vonandi hefst öll þessi starfsemi í þessu fallega og mikilvæga húsi við Akratorg sem allra fyrst.
Bæjarfulltrúinn minnist líka á grein sem þáverandi stjórnarmaður í Miðbæjarsamtökunum – Bjarnheiður Hallsdóttir skrifaði og finnst ekki mikið til koma.
Hann gerir lítið úr þeim hugmyndum okkar á þeim tíma að fylla þetta hús við Akratorg af embættismönnum bæjarins milli kl. 8-16 á virkum dögum.
Bæjarfulltrúinn brátt-horfni veit vel að hugmyndin okkar var stærri en svo og við skulum fara aðeins yfir það og rifja upp úr því hann vekur máls á þessu.
Við í Miðbæjarsamtökunum ákváðum sem sagt eftir að hafa haldið fundi og jólamarkaði og skrifað greinar o.fl. að gera eitthvað sem skipti máli – koma með alvöru hugmynd til bæjaryfirvalda sem myndi, ef vel tækist til, blása lífi í steindauðan miðbæinn okkar. Hugmynd sem við sáum fyrir okkur að gæti orðið að veruleika hratt og örugglega – og gert Akranes að betri og líflegri bæ. Við sáum ekki fyrir okkur að við gætum skorað á fjárfesta að kaupa húsið og opna þar hótel og/eða veitingastað – en sáum fyrir okkur að þar sem Akurnesinga vantaði húsnæði undir ráðhús og við ættum við Akratorg þetta glæsilega hús þá væri það ekki svo vitlaust að skora á bæjaryfirvöld að skoða það einu sinni fyrir alvöru hvort það gengi upp. Í alvöru sko.
Átakið ákváðum við að kalla: Hjartahnoð og fyrsta hjálp fyrir miðbæinn.
Áskorunin sem fólk skrifaði undir hljóðaði svona: Við undirrituð eigum okkur draum um aukið mannlíf í miðbænum okkar og trúum því að ef gamla Landsbankahúsið við Akratorg yrði ráðhús myndi það gerbreyta myndinni og verða táknrænt fyrsta skref í áttina upp á við og að líflegri miðbæ. Við viljum að gamla Landsbankahúsið við Akratorg verði ráðhús Akurnesinga.
Hér eru nokkur rök sem við tókum saman með okkar málflutningi þá:
- Það vantar líf í miðbæinn á Akranesi.
- Það vantar stefnu varðandi miðbæinn á Akranesi.
- Við Akurnesingar eigum ekki ráðhús.
- Við eigum 1400 fm hús við Akratorg sem vill vera ráðhús!
- Akraneskaupstað vantar húsnæði undir starfsemi ráðhúss.
- Starfsemi bæjarins er til bráðabirgða í of litlu húsnæði FEBAN við Dalbraut 4 og vantar framtíðarhúsnæði.
- Það myndi kosta meira en 1000 milljónir að byggja gamla Landsbankahúsið í dag – jafnvel mun meira.
- Húsið er ein merkasta bygging Akurnesinga að margra mati, teiknað af Skagamanni.
- Gamla Landsbankahúsið (sem við eigum) er til sölu fyrir lágmarksverð fyrir „réttan aðila“.
- Það er jafnvel pláss fyrir aðra starfsemi í húsinu líka (veitinga/kaffihús)?
- Bæjarstjórinn myndi vera með skrifstofu í ráðhúsinu við Akratorg og þaðan yrði bænum stýrt.
Við söfnuðum 860 undirskriftum – hefðum getað náð mun fleirum ef við hefðum gefið okkur lengri tíma vegna þess að það var okkar skilningur að fólk í bænum var almennt hrifið af þessari hugmynd.
Við gerðum flottar auglýsingar og héldum íbúafund í Tónbergi. Ég vil vekja athygli á því að fjölmargir bæjarbúar komu að þeim viðburðum sem Miðbæjarsamtökin Akratorg stóðu fyrir og það er nokkuð sérstakt að bæjarfulltrúinn vilji gera lítið úr því, bara af því hann var ekki sammála hópnum.
Ólafur Páll Gunnarsson skrifar:
















