„Það er skítalykt að þessu máli, bókstaflega!,“ skrifar Skagamaðurinn Jóhannes H. Smárason á fésbókarsíðu sína þegar hann lýsir því ástandi sem hefur verið á Akranesi undanfarna daga vegna lyktarmengunar.

Í pistli sínum beinir Jóhannes spjótum sínum að stjórnsýslunni – og að tryggt sé að starfsemi kjúklingabús við bæjarmörk Akraness og Hvalfjarðarsveitar valdi ekki ítrekuðum óþægindum fyrir íbúa á Akranesi. 

Lífleg umræða er við innleg Jóhannesar – og að venju eru skiptar skoðanir um stöðuna sem er ítrekað að koma upp vegna lyktarmengunar frá kjúklingabúinu. 

Ástandið er allra verst í byggðinni sem er austast á Akranesi eða við golfvallarsvæðið, en lyktin hefur líklega ekki farið framhjá íbúum á Akranesi óháð því hvar þeir eru búsettir í bænum.