
Frá því að Skagafréttir fóru í loftið fyrir tæpum áratug – hefur áhugi frambjóðenda að birta aðsenda pistla í aðdraganda bæjarstjórnarkosninga aldrei verið meiri.
Við tökum á móti hvaða efni sem er. Allt er birt – nema drasl sem meiðir.

Ég sem eigandi og ritstjóri Skagafrétta ehf. er afar þakklátur fyrir þann áhuga sem frambjóðendur sýna með óskum um birtingu á aðsendum greinum. Það er ekkert mál. Og með þeim tólum sem mæla aðsókn og heimsóknir get ég lofað að skagafrettir.is er þar fremst í flokki.
Áhugi þeirra fimm flokka sem bjóða fram í bæjarstjórnarkosningumum 2026 á því að kaupa auglýsingu í eina opna bæjarfréttamiðli Akraness – er hinsvegar í sögulegu lágmarki.
Við því er ekkert að gera.
Takk kæru frambjóðendur fyrir að nenna þessu og gangi ykkur sem allra best.
Auglýsingahólfin á skagafrettir.is taka samt sem áður vel á móti ykkar boðskap.
Og fyrir þá lesendur sem hafa áhuga á að styðja við bakið á eina opna bæjarfréttamiðli Akraness – þá eru allar upplýsingar hér:
Sigurður Elvar Þórólfsson – ritstjóri.