Góðgerðarfélagið Eynir í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi kom færandi hendi á dögunum í söfnuninni Mottumars hjá Krabbameinsfélaginu.
Eynir safnaði 158.634 kr. á góðgerðasýningu sem fram fór í Bíóhöllinni á Akranesi.
Það voru Eva María Jónsdóttir, Hrafnhildur Arín Sigfúsdóttir og Hjördís Brynjarsdóttir sem afhentu Krabbameinsfélaginu styrkinn.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Eynir færir Krabbameinsfélaginu gjöf.
Félagið styrkti einnig Krabbameinsfélagið með ágóða úr sjoppusölu á íþróttakeppni framhaldsskóla á Vesturlandi.