Auglýsing
Það er rífandi gangur í starfinu á Smiðjuloftinu á Akranesi þar sem að klifuríþróttin hefur blómstrað samhliða ýmsum menningarviðburðum. Í desembermánuði verður aðeins minna um að vera í Smiðjuloftinu.
Athygli er vakin á Jóla-fjölskyldutímum sem fram fara sunnudagana 9. og 16. desember. Fjölskyldutímarnir hafa vakið mikla lukku og eftir tímann þann 16. desember verður gert hlé á þeim tímum fram í miðjan janúar 2019.
Hjónin Þórður Sævarsson og Valgerður Jónsdóttir eru frumkvöðlarnir á bak við Smiðjuloftið.
Í tilkynningu frá þeim kemur fram að utan opnunartíma Smiðjuloftsins sé tekið á móti hópum. Skemmtilegur kostur fyrir þá sem vilja hittast og eiga skemmtilega jóla-samveru á Smiðjuloftinu.
Mán. 3. des opið frá 18-21
Þri. 4. des Lokað
Mið 5. des Lokað – Dómaranámskeið ÍSÍ frá 19-21
Fim 6. opið frá 18-21
Fös. 7. des Undirbúningur fyrir jólamót ÍA-lokað
Lau 8. des Jólamót Klifurfélags ÍA
Sun 9. des Jóla-fjölskyldutími frá 11-14 (sjá nánar í viðburði). Opið í klifur frá 14-16.
Mán. 10. des opið frá 18-21
Þri. 11. des lokað
Mið. 12. des lokað
Fim. 13. des opið frá 18-21
Föst 14. des lokað
Lau 15. des opið frá 12-15
Sun. 16. des Jóla-fjölskyldutími frá 11-14 (sjá nánar í viðburði). Opið í klifur frá 14-16.
Mán 17. des opið frá 18-21
Fim 20. des opið frá 18-21
21. desember – Smiðjuloftið fer í jólafrí.
Opnum aftur mánudaginn 7. janúar 2019 kl. 18-21.