Tveir Skagamenn eru í íslenska landsliðinu í knattspyrnu karla sem mætir Andorra á föstudaginn í undankeppni Evrópumótsins.
Það eru þeir Arnór Sigurðsson og Björn Bergmann Sigurðarson en þeir leika báðir í rússnesku úrvalsdeildinni.
Arnór er áberandi í viðtölum hjá íslenskum fréttamiðlum sem hafa fylgt liðinu þar sem það undirbýr sig í æfingabúðum landsliðsins á Spáni.
Hér fyrir neðan má sjá viðtal við Arnór sem birtist á visir.is í morgun.
Í viðtali við fotbolti.net segir Arnór að hann horfi á hvern einasta leik með sínu gamla félagi ÍA í gegnum ÍATV. Arnór hefur mikla trú á ÍA liðinu í Pepsimax-deild karla í sumar – og spáir liðinu einu af fimm efstu sætunum.
Hvar mun @ia_akranes enda í sumar? #Fotboltinet spurði @arnorsigurdsson að þessu í dag. Viðtalið í heild kemur inn á síðuna rétt á eftir… pic.twitter.com/a3WjtzfNEx
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) March 18, 2019
Auglýsing
Auglýsing