Skortur er á heitu vatni á Akranesi og eru íbúar beðnir um að fara sparlega með heita vatnið.
Sundlaugarnar á Akranesi verða lokaðar a.m.k. fram yfir helgi eða þar til Veitur gefa grænt ljós í opnun þeirra aftur.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskauptað.
Jaðarsbakkalaug, Bjarnalaug og Guðlaug verða því ekki opnaðar fyrr en í byrjun næstu viku.