Fjölmörg verkefni sem tengjast Akranesi fengu í dag styrki úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands – sem Samtök Sveitarfélaga á Vesturlandi standa að. Alls bárust 124 umsóknir en 92 verkefni fengu styrki. Heildarupphæð styrkja nemur rúmlega 43 milljónum kr. en samanlagt var óskað eftir 176 milljónum kr. í styrki í þessi verkefni.

Alls eru tvær slíkar úthlutanir á árinu 2021 en í síðari úthlutuninni verður úthlutað aftur í flokki atvinnu – og nýsköpunarstyrkja.
Alls fengu 68 verkefni á sviði menningar styrk sem námu 26 milljónum kr. , 17 verkefni hlutu styrk til atvinnuþróunar upp á tæplega 12 milljónir kr. og þá voru veittar rúmlega 5,3 milljónir kr. til stofn- og rekstarstyrkja á sviði menningar.
Hér fyrir neðan má sjá myndband frá úthlutuninni:
| ATVINNU- OG NÝSKÖPUNARSTYRKIR |
| Hönnun á umbúðum | Karen Emilía Jónsdóttir | Karen Emilía Jónsdóttir | 570.000 |
| Hafbjörg krabbastaður | Breið-Þróunarfélag ses | Bjarnheiður Hallsdóttir | 750.000 |
| Úr pottum í vélar | Karen Emilía Jónsdóttir | Karen Emilía Jónsdóttir | 1.500.000 |
| MENNINGARSTYRKIR |
| Kellingar stunda íþróttir | Leikfélagið Skagaleikflokkurinn | Guðbjörg Árnadóttir | 150.000 |
| Menningarverkefni – Kvennakórinn Ymur starfsárið 2021 | Kvennakórinn Ymur | Hrafnhildur Skúladóttir | 250.000 |
| Tónar og ljóð | Valgerður Jónsdóttir | Valgerður Jónsdóttir | 250.000 |
| Afmælisár Leirlistafélags Íslands – 40 ára 2021 | Leirlistafélagið | Kolbrún Sigurðardóttir | 250.000 |
| Menningardagskrá á Bókasafni Akraness árið 2021 | Akraneskaupstaður | Halldóra Jónsdóttir | 300.000 |
| Bílskúrinn | Heiðrún Hámundardóttir | Heiðrún Hámundardóttir | 300.000 |
| Knattspyrna á Akranesi í 100 ár | Björn Þór Björnsson | Björn Þór Björnsson | 300.000 |
| Norðurlandameistaramót í Eldsmíði | Íslenskir Eldsmiðir, áhugamannafélag | Guðmundur Sigurðsson | 450.000 |
| Þjóðahátið Vesturlands | Félag nýrra Íslendinga | Pauline McCarthy | 500.000 |
| Skaginn syngur inn jólin – aðventudagatal | Eigið fé ehf. | Hlédís Sveinsdóttir | 500.000 |
| HEIMA – SKAGI 2021 | Rokkland ehf. | Hlédís Sveinsdóttir | 500.000 |
| Sigurður málari | Muninn kvikmyndagerð ehf. | Bjarni Skúli Ketilsson | 500.000 |
| Menningarviðburðir Kalmans | Kalman – listafélag | Sveinn Arnar Sæmundsson | 600.000 |
| Zoo-I-Side | Muninn kvikmyndagerð ehf. | Heiðar Mar Björnsson | 1.200.000 |
STOFN- OG REKSTRARSTYRKIR MENNINGARMÁLA
| Menningarstarfsemi á Smiðjuloftinu | Smiðjuloftið ehf. | Valgerður Jónsdóttir | 300.000 |