
Sveitastjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti nýverið að samhliða næstu sveitarstjórnarkosningum, þann 16. maí nk., verði lögð fyrir óbindandi viðhorfskönnun meðal kjörgengra íbúa, þar sem spurt verður um afstöðu til sameiningar við önnur sveitarfélög.
Þetta kemur fram í fundargerð sveitastjórnar – smelltu hér:

Þar verða lagðar fram eftirfarandi spurningar:
Hver er afstaða þín til sameiningar Hvalfjarðarsveitar við önnur sveitarfélög?
[ ] Hlynnt(ur).
[ ] Hvorki né/tek ekki afstöðu.
[ ] Andvíg(ur/t).
Ef hlynnt(ur), hvert horfir þú til?
[ ] Akraneskaupstaðar
[ ] Borgarbyggðar
[ ] Kjósarhrepps
[ ] Annað: ________________ „




















