
Bæjarráð Akraness hefur samþykkt að Sementsverksmiðjan fái að halda áfram rekstri á Akranesi fram til 1. ágúst 2030.
Um er að ræða framlengingu til tveggja ára en núverandi samningi rennur út þann 1. ágúst 2028. Málið verður lagt fyrir bæjarstjórn og má gera ráð fyrir að þar verði samningurinn samþykktur.

Birgðahald Björgunar Sements á Akranesi verður því tryggt á meðan unnið er að næstu skrefum í málinu. Gert er ráð fyrir að mannvirkin á svæðinu verði afhent Akraneskaupstað að loknum samningstímanum árið 2023. Jafnframt eru skipulagsáform Akraneskaupstaðar á þessum hluta Sementsreits óbreytt.
Í fundargerðinni kemur fram að Hornstein, móðurfélag Björgunar Sements og BM Vallár, stefnir að frekari uppbyggingu starfsemi BM Vallár í Höfðaseli. Nú þegar hefur smávöruframleiðsla verið flutt til Akraness með tilheyrandi fjölgun starfa, og áfram er unnið að frekari vexti starfseminnar í Höfðaseli. Nýtt samkomulag felur í sér jákvæð áhrif fyrir atvinnulíf á Akranesi, með fjölgun starfa og eflingu mikilvægrar starfsemi í bænum.
Sementsverksmiðjan er staðsett að Mánabraut 20, Akranesi, þar sem sementið sem flutt er til landsins er geymt, pakkað og afhent til viðskiptavina á höfuðborgarsvæði, Vestur- og Suðurlandi.
Á Akranesi eru fjórir sementstankar sem taka um 4000 tonn af sementi hver.
Sementsverksmiðjan og Akraneskaupstaður gerðu árið 2013 samning sem tryggir að verksmiðjan geti haft þessa fjóra sementstanka til umráða. Um var að ræða samning til 15 ára. Þessum samingi hefur nú verið framlengt til tveggja ára. Að samningstíma liðnum ætti Akraneskaupstaður að fá sementstankana afhenta.




















