Aðsend grein:  

Það hefur oft verið meira samstíga sveitarstjórnarfólkið í okkar kæru Hvalfjarðarsveit og í nágrannasveitarfélagi okkar á Akranesi en á undanförnum árum. Eftir þétt og náið samstarf á undanförnum áratugum hefur nokkuð slest uppá vinskapinn. 

Augljóst er flestum að þar ræður nokkru að rekstur þessara sveitarfélaga hefur á síðustu árum færst á ólíkar brautir. Fjárhagur Hvalfjarðarsveitar hefur styrkst á meðan rekstur og fjárhagur Akraneskaupstaðar hefur veikst, í bili að minnsta kosti. Það hefur kallað fram ríkari kröfur okkar ágætu nágranna um einhvers konar hlutdeild þeirra í fjárhagslegum árangri okkar. Eru þar einkum nefndar eðlilegar tekjur Hvalfjarðarsveitar af fasteignum þeirra fyrirtækja sem rekin eru á Grundartanga,  svo eitthvað sé nefnt. 

Þrátt fyrir kröfur um nánara samstarf tók bæjarstjórn Akraneskaupstaðar á sama tíma þá ákvörðun að festa kaup á jörð í Hvalfjarðarsveit án samráðs og fannst sjálfsagt að fá jörðina færða undir Akranes. 

Möguleg uppbygging nýrrar hafnar á Galtarlæk kallaði á afar mikla andstöðu og mótmæli nágranna okkar á Akranesi og þar réðu einkum áhyggjur af hugsanlegri samkeppni í hafnarekstri.  

 

Í öllum þessum málum féllu þung og stundum afar þung orð til okkar frá nágrönnum okkar, ekki síst frá stjórnendum og kjörnum fulltrúum. Mátti af þeim ráða að Skagamenn ætluðu sér að sameinast okkur hvað sem tautaði og raulaði. Sem betur fer hefur sjálfsákvörðunarréttur íbúa ekki alveg verið afnuminn. Að honum er þó sótt í nafni stærðarhagkvæmni.

Rekstur þessara tveggja sveitarfélaga sannar þvert á móti að stærðarhagkvæmni endurspeglast ekki í afkomu rekstrar þeirra.

Það kom því mjög á óvart, eftir það sem hér að framan er lýst, þegar bæjarstjóri Akraneskaupstaðar var skyndilega horfinn á braut og samdægurs orðinn í stafni framboðs til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar með samheldnina sem helsta vopn. Eitt af helstu baráttumálunum er að koma í veg fyrir ásælni utanaðkomandi í tekjur stóriðjunnar á Grundartanga. Bragð er að þá barnið finnur. Hversu skjótt er hægt að draga nýjan fána að húni? Bæjarstjórn Akraness lýsti miklum hamingjuóskum með þessa ákvörðun bæjarstjórans. Eftir hvaða hamingju er beðið? Margar spurningar hafa vaknað sem vonandi verður svarað á komandi dögum.

Íbúar Hvalfjarðarsveitar hafa verið afar samhentir í sínum ákvörðunum á undanförnum árum um samstarf sveitarfélaga. Bæði stórum og smáum. Vonandi verður svo áfram þrátt fyrir ásælni og öll þau hýru augu sem að okkur beinast þessi misserin. Sagan, bæði ný og gömul, hefur hins vegar kennt okkur að vera á varðbergi.

Höfundar skipa sjö efstu sæti á lista Íbúahreyfingarinnar í Hvalfjarðarsveit.