Knattspyrnumaðurinn góðkunni Karl Þórðarson sló draumahöggið í Bönkerinn – Innigolf á Akranesi miðvikudaginn 12. mars 2025. Þetta kemur fram á fésbókarsíðu Bönkerinn – Innigolf. Karl notaði nýja Lazrus hybrid kylfu í höggið en hann sló boltann ofaní í upphafshögginu á 17. braut á Cape Wickham...
Tveir leikmenn úr röðum ÍA eru U-21 árs landsliði Íslands sem leikur vináttuleiki gegn Ungverjalandi og Skotlandi þann 21. og 25. mars.Leikirnir fara fram á Spáni. Hinrik Harðarson og Haukur Andri Haraldsson voru valdir í hópinn en Ólafur Ingi Skúlason er þjálfari liðsins. Hópurinn er þannig skipaður: Ásgeir...
Skagamaðurinn Arnar Gunnlaugsson valdi í dag sinn fyrsta landsliðshóp sem þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu.Fjórir fyrrum leikmenn ÍA eru í hópnum. Þeir eru: Bjarki Steinn Bjarkason, Stefán Teitur Þórðarson, Hákon Arnar Haraldsson og Ísak Bergmann Jóhannesson. Ísland leikur í umspili Þjóðardeildarinnar gegn Kósóvó fimtudaginn 20. mars á...
Skagakonan Sandra Margrét Sigurjónsdóttir er nýr framkvæmdastjóri fjármálasviðs Coca – Cola á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu. Sandra Margrét hefur víðtæka reynslu á sviði fjármála og rekstrar framleiðslufyrirtækja í alþjóðlegu umhverfi. Hún hefur starfað hjá Marel undanfarin sex ár sem fjármálastjóri fiskiðnaðar og síðar...
Veitingastaðurinn Nítjánda bistro, sem hefur verið með starfssemi á Garðavöllum við golfvöllinn undanfarin þrjúr ár, mun flytja sig um set á næstunni. Nýr rekstraraðili mun taka við veitingarekstrinum. Hlynur Guðmundsson veitingamaður mun flytja starfssemi fyrirtækisins til Golfklúbbs Suðurnesja. Þetta kemur fram í tilkynningu sem er...
„Meira landbrot, skemmdir á mannvirkjum, búsetuógn af völdum aukinna sjávarflóða og mikil fjárútlát blasa við okkur. Váin eykst með hverjum áratugi með harðnandi sjávarrofi,“ skrifar Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur í pistli á fésbókarsíðu sinni. Tilefnið eru miklar hamfarir á SV-horni landsins eftir ágang sjávar nýverið. Miklar skemmdir...
Akranesmeistaramótið í Pílu fór fram nýverið en keppnisfyrirkomulagið var 501. Alls tóku 22 keppendur þátt. Fyrst var leikin riðlakeppni og útsláttarkeppni tók við eftir riðlakeppnina. Til úrslita léku Gunnar H. Ólafsson og Sigurður Tómasson – og fagnaði Gunnar sigri 6-4.Í leiknum um þriðja sætið léku...
Sveitarstjórar og bæjarstjórar af Vesturlandi ásamt framkvæmdastjóra og formanni Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi funduðu í dag með forsætisráðherra og innviðaráðerra í Stjórnarráðinu. Tilefni fundarins var að fylgja eftir bréfi sem framangreindur hópur sendi oddvitum ríkisstjórnarinnar til að vekja athygli á neyðarástandi vegamála á Vesturlandi. Haraldur...
Skagamenn tryggðu sér sæti í efstu deild karla á Íslandsmótinu í körfuknattleik í kvöld – og er 25 ára bið félagsins á enda. ÍA lagði Fjölni 106-97 á útivelli í Grafarvogi og tryggði sér þannig sigur í 1. deild karla á Íslandsmótinu. Þetta var 12. sigurleikur...
Karlalið ÍA í körfuknattleik getur tryggt sér sæti í efstu deild Íslandsmótsins, Bónus-deildinni, þegar liðið sækir Fjölni heim í Grafarvogi föstudagskvöldið 7. mars. ÍA er í efsta sæti 1. deildar þegar þrjár umferðir eru eftir. ÍA er með 32 stig, en Sindri frá Hornafirði og Hamar...