„Þessi hópur framhaldsskólanema afsannar allar vondar spár um framtíð æskufólks í okkar skrítna samfélagi; á fjórum vikum skrúfuðu þau saman flókna og mikla sýningu, þau sungu, dönsuðu og túlkuðu persónur leiksins eins og þau hefðu aldrei gert annað,“ skrifar Ólafur Haukur Símonarson höfundur Gauragangs þegar hann lýsir upplifun sinni eftir frumsýningu verksins hjá Leiklistahópnum Melló...
Á kynningarfundi ÍTF fyrir Bestu deild karla, sem haldinn var í höfuðstöðvum Deloitte í síðustu viku, var kynnt spá fulltrúa félaganna í deildinni um lokastöðu liða. Það eru fyrirliðar, þjálfarar og formenn liðanna í deildinni sem spá. Karlaliði ÍA er spáð 6. sæti deildarinnar eins og sjá má hér fyrir neðan. Ef spáin gengur eftir mun ÍA...
Kvennalið ÍA í knattspyrnu sigraði með nokkrum yfirburðum í Lengjudeild KSÍ – B-deild 2025. ÍA lagði ÍBV frá Vestmannaeyjum í lokaumferðinni í gær – 4:0.Skagaliðið vann alla sjö leiki sína í þessari keppni og var með 22 mörk í plús eftir þessa leiki. Liðið heldur nú í æfingaferð til Tenerife – en ÍA leikur í Lengjudeildinni á...
Keppni í Bestu deild karla 2025 hefst í kvöld, laugardaginn 5. apríl, með viðureign Breiðabliks og Aftureldingar á Kópavogsvelli.Á sunnudag eru síðan þrír leikir og fyrsta umferð klárast á mánudag með tveimur leikjum.Laugardagur 5. apríl19:15 Breiðablik – Afturelding, Stöð 2 SportSunnudagur 6. apríl14:00 Valur – Vestri, Stöð 2 BD16:15 KA – KR, Stöð 2 Sport...
Tomasz Wisła hefur á undanförnum árum verið iðinn við að taka myndir af nærumhverfinu á Akranesi.Wisla er frábær á sínu sviði sem ljósmyndari eins og sjá má á þessari mynd sem hann birti í morgun.Myndin er tekin rétt við aðstöðu hestamannafélagsins Dreyra við Æðarodda. Og norðurljósin eru í aðalhlutverki – en myndin segir allt sem...
Karlalið ÍA leikur sinn fyrsta leik Íslandsmótinu í knattspyrnu 2025 á útivelli sunnudaginn 6. apríl gegn Fram og hefst leikurinn kl. 19:15. Dómaranefnd KSÍ hefur gefur út áhersluatriði fyrir þetta tímabil og þar er rauði þráðurinn að hart verði tekið á „tuði og töfum“ á þessu tímabili.Áhersluatriðin eru kynnt á sérstökum fundum sem haldnir með fulltrúum...
Káramenn eru komnir áfram í 32 liða úrslit Mjólkurbikarkeppni KSÍ eftir stórsigur í kvöld gegn Árbæingum. Leikurinn fór fram í Akraneshöllinni. Káramenn komust yfir strax eftir 8 mínútur þegar Sigurjón Logi Bergþórsson skoraði fyrsta mark leiksins. Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson kom Kára í 2-0 á 14. mínútu, Martein Theódórsson skoraði þriðja markið á 28. mínútu. Þór...
Orri Harðarson birti í dag á fésbókarsíðu sinni upptöku frá tónleikunum, Vonin blíð í Orrahríð, sem fram fóru nýverið í Bíóhöllinni. Orri segir í færslunni að þessi flutningur sé alveg hreint dásamlegur – en texti Orra er hér fyrir neðan.„Upptaka frá tónleikunum um daginn. Alveg hreint dásamleg. Elsku Ragga syngur gamalt lag eftir mig sem heitir...
Söngleikurinn Gauragangur hefur slegið í gegn á fjölum Bíóhallarinnar á Akranesi á undanförnum dögum.Þar eru nemendur Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í aðalhlutverki í þessu þekkta verki. Hér fyrir neðan eru myndir frá sýningu 4. apríl og einnig myndbrot frá sýningunni. Smelltu hér fyrir myndasafn frá Gauragangi á myndavef Skagafrétta.
Golfklúbburinn Leynir bauð nýverið upp á „Pop Up“ æfingar fyrir stelpur á aldrinum 7-18 ára. Um var að ræða tvo gjaldfrjálsa viðburði. Birkir Þór Baldursson íþróttastjóri Leynis sá um skipulagið á viðburðinum – og fékk aðstoð frá öflugum stelpum sem stunda golf hjá Leyni.Mætingin var góð og rúmlega 20 stelpur mættu og skemmtu sér vel. Í tilkynningu...