Það styttist í að danskir sprengjusérfræðingar felli Sementsstrompinn á Akranesi.
Gert er ráð fyrir að fella strompinn, sem er um 70 metra hár, rétt eftir hádegi föstudaginn 22. mars 2019.
Í dag var unnið hörðum höndum við að setja sprengiefni fyrir á réttum stöðum í strompinum.
Myndirnar tók Hjalti Sig í dag úr dróna sem var í um 25-30 metra hæð.
Eins og áður segir verður strompurinn felldur kl. 12:15 og verður hægt að sjá atburðinn í beinni útsendingu hér á skagafrettir.is – eða á fésbókarsíðunni skagafrettir.is.
Dínamít er sprengiefni sem sænski efnafræðingurinn Alfred Nóbel (1833-1896) fann upp árið 1867.
Faðir Alfreds, Immanuel, var byggingarverkfræðingur í Stokkhólmi en þaðan fékk Alfred áhuga sinn á að finna upp öruggari og skilvirkari leið við sprengingar í byggingariðnaðinum en áður hafði tíðkast.
Auglýsing
Auglýsing