Fjórir umsækjendur um embætti sóknarprests á Akranesi og Hvalfjarðarströnd


Fjórir umsækjendur eru um embætti sóknarprests í Garða- og Hvalfjarðarstrandarprestakalli. Þetta kemur fram á vef Þjóðkirkjunnar.

Umsækjendurnir eru:

Mag. theol. Dagur Fannar Magnússon
Dr. theol. Jón Ásgeir Sigurvinsson
Séra Úrsúla Árnadóttir
Séra Þráinn Haraldsson

Frestur til að sækja um embættið rann út á miðnætti miðvikudaginn 25. júní 2019.

Umsóknir hljóta umfjöllun matsnefndar um hæfni til prestsembættis og að fenginni niðurstöðu hennar fjallar kjörnefnd prestakallsins um umsóknirnar. Kjörnefnd kýs að því búnu milli umsækjendanna og skipar biskup Íslands þann umsækjanda sem hlýtur löglega kosningu.