Ekkert nýtt Covid-19 smit greint fimmta daginn í röð á Vesturlandi


Lögreglan á Vesturlandi var rétt í þessu, mánudaginn 20. apríl, að birta nýjustu upplýsingar um stöðuna á Covid-19 faraldrinum.

Staðan er óbreytt en 40 Covid-19 smit hafa verið greind á Vesturlandi.

Aðeins þrú ný smit hafa verið greind frá því á sunnudeginum 5. apríl sem eru góðar réttir.

Á Akranesi hafa því 12 Covid-19 smit verið greind og eru 10 í sóttkví á Akranesi og 32 á Vesturlandi öllu.

Eins og sjá má á töflunum hér fyrir neðan hefur ásatandið lagast mikið á Vesturlandi á undanförnum vikum.