Mörg þúsund manns fylgjast með „Skaginn syngur inn jólin?“ – sjötti glugginn opnaðist með látum

Í dag var sjötti glugginn opnaður í dagatalinu „Skaginn syngur inn jólin með þér“. Það er óhætt að segja að verkefnið hafi slegið í gegn og mörg þúsund manns fylgjast með á hverjum einasta degi.

Alls er 24 tónlistaratriði á dagskrá og verður einn gluggi opnaður kl. 9 á hverjum morgni fram að jólum.

Mikil leynd hvílir yfir flytjendum en atriðin voru tekin upp í Stúkuhúsinu á Byggðasafninu í Görðum.

Ólafur Páll Gunnarsson og Hlédís Sveinsdóttir eru kynnar í þessu verkefni. Heiðar Mar Björnsson sá um upptökur og Sigurður Ingvar Þorvaldsson sá um hljóðupptökurnar.

Hljómsveitarstjórinn er Birgir Þórisson, aðstoðarskólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi en hann er einnig í Húsbandinu sem spilar undir hjá tónlistarfólkinu.

Auk hans eru Pétur Valgarð Pétursson (gítar), Sigurþór Þorgilsson (bassi) og Þorvaldur Kári Ingveldarson (trommur).

6. desember:

5. desember:

4. desember:

3. desember:

2. desember:

1. desember: