Aukið öryggi orkuafhendingar með nýju tengivirki á Akranesi

Framkvæmdum við nýtt tengivirki Veitna og Landsnets á Akranesi lauk vorið 2016 og var það tekið formlega í notkun við athöfn, 18. janúar. Við þetta tilefni ávarpaði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, gesti og Inga Dóra Hrólfsdóttir, framkvæmdastjóri Veitna, Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets og Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri á Akranesi, fluttu tölu.

Nýja tengivirkið á Akranesi er staðsett við Smiðjuvelli 24 en gamla tengivirkið var á svæði sem nú hefur verið skipulagt sem íbúðarhverfi.

Inga Dóra Hrólfsdóttir, framkvæmdastjóri Veitna, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðherra, Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri á Akranesi og Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets. Mynd/Guðni Hannesson.

Byggingarframkvæmdir voru boðnar út 2014 og var samið við ÍAV um byggingu hússins og hófust framkvæmdir haustið 2014. Uppsetning á rafbúnaði hófst hausti 2015 og húsið var fullklárað vorið 2016.

Byggingin sem er um 1150 fm er 70% í eigu Veitna og 30% í eigu Landsnets. Rafmagn kemur til stöðvarinnar frá Brennimel og frá Andakíl eftir flutningskerfi Landsnets og við hana tengjast 45 dreifistöðvar (spennistöðvar), staðsettar vítt og breitt um bæinn.

Hönnun hússins var í höndum VSÓ Ráðgjafar og Stúdíó Strik Arkitekta. Verkfræðistofan Efla sá um verkeftirlitið og byggingastjórnun. Aðrir verktakar sem komu að byggingunni voru RST Net, Þjótandi, NKT, Verkís, Lota, Landhönnun og Rafskoðun.

Inga Dóra Hrólfsdóttir framkvæmdastjóri Veitna segir að ánægjulegt sé að taka tengivirkið í notkun. „Það er mikilvægt fyrir okkar viðskipti hér á Skaganum að þetta mannvirki er komið í notkun. Samhliða byggingu þess uppfærðum við og gerðum endurbætur á dreifikerfinu í bænum. Ég ætla ekki að lofa miklu betra rafmagni í innstungur íbúa en áframhaldandi traustri og góðri þjónustu starfsfólks Veitna.

Með tilkomu þess verður staðan eins og best gerist á landinu.

Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets segir að nýja tengivirkið komi til með að auka öryggi orkuafhendingar á svæðinu og bæta aðgang viðskiptavina að rafmagni. „Með tilkomu þess verður staðan eins og best gerist á landinu. Aukið aðgengi að rafmagni og bætt öryggi er forsenda þess að raunhæft sé að skipta út mengandi orkugjöfum fyrir rafmagn. Á Akranesi eru tækifæri til orkuskipta bæði í samgöngum og atvinnulífinu sem vert er að skoða.“

Hér fyrir neðan eru myndir frá opnunarathöfninni frá Veitum en Guðni Hannesson tók myndirnar:

15994877_1531967256816856_7518543554495463025_o15977615_10154958516482082_2987259536294742079_n

15994746_1531967246816857_8803927741841873421_o 15995043_1531967176816864_5250950835732007126_o 16177569_1531967170150198_3337610904803430130_o 16178488_1531967166816865_2787597266014894329_o 16179123_1531967113483537_5388722069453782522_o 15994403_1531967110150204_7181900141556401831_o 16107248_1531967106816871_4047935522141378799_o 16143797_1531967063483542_7229886492053643646_o 15995005_1531966993483549_1958079468987765008_o 15974947_1531966956816886_3514333926360340890_o 15995252_1531966830150232_3450629300688333954_o 16113101_1531966853483563_9080396832522570568_o 16112882_1531966850150230_3192479269288450177_o