Regína á förum og nýr bæjarstjóri tekur við á Akranesi

Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Akraness, tekur við nýju starfi sem sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Það er því ljóst að nýr bæjarstjóri tekur við starfinu af Regínu en ekki er ljóst hvenær það mun gerast. Regína tekur við starfinu af Stefáni Eiríkssyni sem var skipaður borgarritari í desember á s.l. ári.

Alls sóttu ellefu manns um stöðuna. Var það samdóma álit valnefndar sem fór yfir umsóknir og tók viðtöl við umsækjendur að Regína Ásvaldsdóttir uppfyllti best umsækjenda þær kröfur sem gerðar eru til starfs sviðsstjóra og fram komu í auglýsingu um starfið.

Regína tók við sem bæjarstjóri á Akranesi fyrir fjórum árum.

Á vef Reykjavíkurborgar kemur eftirfarandi fram:

Regína býr yfir víðtækri reynslu af stjórnun á vettvangi sveitarstjórnarmála. Hún hefur gengt stöðu bæjarstjóra á Akranesi síðustu fjögur ár. Hún starfaði hjá Reykjavíkurborg á árunum 1997-2011 í ýmsum stjórnunarstöðum þar á meðal í velferðarþjónustu. Hún var skrifstofustjóri borgarstjóra á árunum 2008 -2011, sviðsstjóri þjónustu-og rekstrarsviðs 2004- 2007 og framkvæmdastjóri Miðgarðs, þjónustumiðstöðvar Grafarvogs og Kjalarness 1997 – 2002. Auk þess sinnti hún víðtækum stjórnkerfisbreytingum hjá Reykjavíkurborg.

Regína er félagsráðgjafi að mennt, með cand. mag gráðu í félagsráðgjöf og afbrotafræði frá Háskólanum í Osló og meistaranám í hagfræði með áherslu á breytingastjórnun og nýsköpun frá Háskólanum í Aberdeen.

Auk stjórnunarstarfa hefur Regína sinnt víðtækum breytingastjórnunarverkefnum og verið stundakennari við háskólann á Bifröst og við háskóla íslands þar sem hún hefur kennt stefnumótun og breytingastjórnun.

Velferðarsvið ber ábyrgð á velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar. Á sviðinu starfa 2.500 manns sem veita þjónustu á yfir 100 starfseiningum,“ segir í fréttinni.