Íþróttabandalag Akraness (ÍA) og Ungmennasamband Borgarfjarðar (UMSB) hafa á undanförnum misserum unnið að því verkefni að endurvekja sunddeild Skallagríms í Borgarnesi.

Þjálfarar á vegum Sundfélags Akraness settu af stað æfingar í samráði við UMSB – og hefur verkefnið gengið það vel að það fékk Hvatningarverðlaun UMFÍ.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá UMFÍ – sjá hér fyrir neðan. 

Fjögur verkefni fengu Hvatningarverðlaun á Sambandsráðsfundi UMFÍ sem fram fór á Ísafirði nýverið.

Guðrún Hildur Þórðardóttir, sambandsstjóri UMSB, og Gyða Björg Bergþórsdóttir, formaður ÍA, tóku saman við verðlaunum.

Nánar á vef UMFÍ: