
Keppnistímabilið hjá 3. flokki karla ÍA í knattspyrnu fer í sögubækurnar – en liðið varð bæði Íslands – og bikarmeistari, auk þess að sigra á alþjóðlega mótinu REY-CUP.
Úrslitaleikur bikarkeppninnar fór fram í Akraneshöllinni þar sem að Skagamenn lögðu lið Breiðabliks 3-2 að viðstöddum um 300 áhorfendum.

Á leið sinni í úrslitaleikinn sigruðu Skagamenn lið Fylkis 4-0 í 16-liða úrslitum.
Í 8-liða úrslitum komu KA-menn í heimsókn á Skagann og þar sigraði ÍA 3-2.
Í undanúrslitum lagði ÍA lið Vals 3-2 og Blikar voru mótherjar ÍA í úrslitaleiknum eins og áður hefur komið fram.
Þjálfarar liðsins eru Elínbergur Sveinsson, Sigurður Jónsson og Hafþór Pétursson.

