Tryggvi Hrafn Haraldsson lék sinn fyrsta A-landsleik á ferlinum gegn Mexíkó í Las Vegas í Bandaríkjunum í nótt. Tryggvi, sem er nýliði í A-landsliði karla í knattspyrnu, kom inn á sem varamaður á 67. mínútu fyrir Kristinn Frey Sigurðsson. Alan Pulido skoraði eina mark leiksins á 21. mínútu.
Sigur Mexíkó var sanngjarn þar sem liðið átti 20 marktilraunir gegn 6 tilraunum íslenska liðsins. Leikmannahópur Íslands var að mestu skipaður leikmönnum frá liðum á Norðurlöndunum og Íslandi þar sem ekki er um opinberan landsleikjadag að ræða.
Leikurinn fór fram á Sam Boyd leikvanginum í Las Vegas í Bandaríkjunum þar sem 30 þúsund áhorfendur mættu á völlinn.
Sex nýliðar léku með íslenska landsliðinu. Frederik Schram, Kristinn Freyr Sigurðsson og Kristján Flóki Finnbogason voru í byrjunarliðinu og þeir Tryggvi Hrafn Haraldsson, Árni Vilhjálmsson og Adam Örn Arnarson komu inná sem varamenn.