Skagamaðurinn Ríkharður Jónsson, einn þekktasti íþróttamaður Íslands fyrr og síðar, lést í gærkvöldi, 14. febrúar 2017. Ríkharður var fæddur 12. nóvember árið 1929. Ríkharður áttt einstakan knattspyrnuferil og hampaði m.a. sex Íslandsmeistaratitlum og var lykilmaður í íslenska landsliðinu um margra ára skeið. Ríkharður var tekinn inn í Heiðurshöll ÍSÍ þann 30. desember 2015 og er hann í hópi 15 einstaklinga sem hafa fengið þá viðurkenningu. Við hér á skagafrettir.is sendum aðstandendum og fjölskyldu Ríkharðs okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Á heimasíðu Heiðurshallar ÍSÍ stendur eftirfarandi um Ríkharð Jónsson.
Frá unga aldri stundaði Ríkharður íþróttir og þá einkum knattspyrnu og gekk snemma til liðs við Knattspyrnufélag Akraness. Hann var í fyrsta meistaraflokksliði ÍA árið 1946 þá aðeins 16 ára gamall.
Meðfram námi í Reykjavík stundaði hann knattspyrnu með Fram, en að námi loknu flutti hann að nýju á Akranes og lék með liði ÍA alla tíð síðan auk þess sem hann þjálfaði liðið um 18 ára skeið. Árið 1946 var Ríkharður, þá 16 ára, valinn í landsliðhóp vegna leiks Íslands gegn Dönum en árið eftir lék Ríkharður sinn fyrsta landsleik aðeins 17 ára gamall gegn Norðmönnum.
Þann 20. júní 1951 lauk Íslandsmótinu í knattspyrnu karla með sigri ÍA og varð félagið fyrst liða utan Reykjavíkur til að hampa Íslandsmeistaratitli. Ríkharður Jónsson á að baki einstakan knattspyrnuferil og meðal annars má geta þess að hann lék 185 leiki með ÍA og skoraði 139 mörk. Hann hampaði sex Íslandsmeistaratitlum og lék 33 landsleiki á árunum 1946-1965, þar af var hann fyrirliði í 22 leikjum. Hann skoraði 17 mörk í landsleikjum.
Ríkharður var formaður ÍA um árabil og er nú heiðursfélagi Íþróttabandalags Akraness, Knattspyrnufélags ÍA og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Hann hefur verið sæmdur æðstu heiðursmerkjum ÍSÍ og KSÍ auk þess sem honum hefur verið veitt fálkaorða íslenska lýðveldisins.