Káramenn eru í toppbaráttunni í 2. deild karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu.
Kári sigraði lið Þróttar úr Vogum á útivelli 4-1. Kári er með 16 stig eftir 9 umferðir. Liðið er með 4 sigra, 4 jafntefli og hefur aðeins tapað einum leik.

Haukar eru á toppi deildarinnar með 19 stig.
Tvö efstu liðin fara upp í Lengjudeildina, næst efstu deild, í mótslok.
Næsti leikur Kára er laugardaginn 27. júní og fer sá leikur fram í Akraneshöllinni kl. 16:00.






