Það er ávallt nóg um að vera hjá félögum í Klifurfélagi Akraness. Um s.l. helgi lauk Íslandsmeistararöðinni sem fram fór í Klifurhúsinu í Reykjavík. Fjölmennur hópur keppenda frá Akranesi mætti til leiks og stóðu þeir sig með prýði.
Í unglingaflokki klifraði Brimrún Eir Óðinsdóttir fyrir ÍA. Fyrir mótið var Brimrún Eir í öðru sæti og þurfti því að klifra vel til að verja sitt sæti. Hún lauk keppni með 147 stig sem nægði henni annað sætið á mótinu á eftir Gabríelu Einarsdóttur sem hefur haldið forystu frá byrjun mótaraðarinnar.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2017/03/admin-ajax-1132x670.jpeg)
Þar með hefur Brimrún Eir tryggt Klifurfélagi ÍA annað sæti í keppni um Íslandsmeistaratitilinn og þátttökurétt á Bikarmeistaramóti Íslands sem haldið verður í apríl, en sex efstu keppendurnir fá þátttökurétt á því móti.
![Frá keppni í Klifurhúsinu í Reykjavík.](http://localhost:8888/skagafrettir/wp-content/uploads/2017/03/DSC01549-1024x768.jpg)