Næturlokanir í Hvalfjarðargöngunum hefjast á mánudaginn

Hvalfjarðargöng verða lokuð fjórar nætur í næstu viku (17. viku ársins). Í tilkynningu frá Speli er vakin er sérstök athygli á að lokað verður kl. 22 að kvöldi mánudags 24. apríl en á miðnætti næstu þrjú kvöld þar á eftir.

Næturlokun ganganna á þessum tíma árs er hefðbundinn vor- og sumarboði, tími sem nýttur er til viðhalds af ýmsu tagi og hreingerningar.

Lokað verður sem hér segir í þetta sinn:

  • Frá kl. 22 að kvöldi mánudags 24. apríl til kl. 6 að morgni þriðjudags 25. apríl.
  • Frá miðnætti að kvöldi þriðjudags 25. apríl til kl. 6 að morgni miðvikudags 26. apríl.
  • Frá miðnætti að kvöldi miðvikudags 26. apríl til kl. 6 að morgni fimmtudags 27. apríl.
  • Frá miðnætti að kvöldi fimmtudags 27. apríl til kl. 6 að morgni föstudags 28. apríl.