Það er vor í lofti og það hefur heldur betur lifnað yfir bæjarlífinu á Akranesi þar sem að bæjarbúar hafa nýtt sér veðurblíðuna til útiveru. Hjólreiðafólki fer fjölgandi á þessum árstíma og ekki síst hjá grunnskólanemum.
Í Brekkubæjarskóla standa yfir hjóladagar í íþróttatímum þessa dagana. Þar æfa nemendur leikni sína á reiðhjólum og/eða hlaupahjólum á sérstakri braut sem íþróttakennararnir setja upp við skólann.
Það var mikið fjör á skólalóðinni í Brekkó eins og sjá má á þessu myndbandi.