Skagamaðurinn Pétur Steinn Gunnarsson er í leikmannahóp U-15 ára landsliðs Íslands í körfuknattleik – en tilkynnt var um valið nýverið.
Liðið tekur þátt á Opna Norðurlandamótinu sem fram fer í borginni Kisakallio í Finnland dagana 1.-7. ágúst.

Hópurinn er þannig skipaður:
Albert Þorleifsson – Breiðablik
Axel Kári Arnarsson – Breiðablik
Benedikt Arnór Þórólfsson – Breiðablik
Einar Jökull Eyþórsson – Selfoss
Guðjón Máni Brjánsson – Álftanes
Guðmundur Nóel Jónsson – KR
Hjörtur Páll Davíðsson – Keflavík
Hrafn Viðarsson – Stjarnan
Jakob Hrafn Þórisson – Þór Þ
Óttar Ingimar Davíðsson – Fjölnir
Pétur Steinn Gunnarsson – ÍA
Sölvi Hrafn Arnarsson – Breiðablik
Þjálfari er Ilija Omrcen og honum til aðstoðar eru Gunnar Sverrisson og Hlynur Logi Ingólfsson.







